Vörur innkallaðar vegna leifa af Fipronil í innfluttu eggjarauðudufti

Samkvæmt niðurstöðum mælinga sem gerðar voru við innflutningseftirlit Matvælastofnunar fundust
leifar af efninu Fipronil í eggjarauðudufti frá Ítalíu. Eggjarauðuduftið var ætlað til notkunar við
framleiðslu á tilteknum vörum hjá Ora. Í samræmi við gæðakerfi fyrirtækisins var allri notkun
eggjarauðuduftsins hætt þegar í stað og hafa vörur sem innihalda hið mengaða hráefni verið
innkallaðar.
Rétt er að taka fram að magn efnisins var mjög lítið og ekki skaðlegt neytendum. Tekin voru tvö sýni
og var magn Fipronil í öðru vel undir leyfilegum viðmiðunarmörkum en rétt yfir mörkum í hinu
sýninu. Samkvæmt gæðakerfi Ora er notkun hráefnis hætt í slíkum tilvikum til að tryggja öryggi
afurða, jafnvel þótt mælingar séu undir viðmiðunarmörkum. Jafnframt verður farið fram á að erlendir
söluaðilar eggjarauðudufts staðfesti með vottorði óháðra eftirlitsaðila að hráefnið sem Ora kaupir
fyrir sína framleiðslu sé algjörlega laust við umrætt efni.
Fipronil er notað til aflúsunar á dýrum, meðal annars gæludýrum. Óheimilt er að nota það á dýr sem
ræktuð eru til manneldis eða framleiðslu afurða til manneldis. Efnið á því ekki að geta komist inn í
fæðukeðjuna með þessum hætti sé rétt að málum staðið.
Í meðfylgjandi töflu má sjá lista yfir vörur sem hafa verið í almennri dreifingu í verslunum og eru í
innköllun. Hafi fólk þessar vörur undir höndum með þeim lotunúmerum sem um ræðir er
vinsamlegast óskað efir því að þeim verði skilað í næstu verslun sem selur vöruna þar sem hún verður
jafnframt endurgreidd.
Innköllunin á aðeins við um þessar lotur hér að neðan:
Vörunúmer Ísam |
Lýsing vara |
Lota |
Framleiðsludagur |
Best fyrir |
28564 |
Ora Bernaisesósa 170 ml |
L2B227 |
14.8.2017 |
28.2.2018 |
23400 |
Ora Graflaxsósa 170ml |
L2B233 |
21.8.2017 |
21.2.2018 |
22620 |
Bónus Bernaisesósa 275ml |
L2B227 |
15.8.2017 |
28.2.2018 |
1008 |
Ora HM Plokkfiskur með bernais & osti |
23.08.2017 |
23.08.2017 |
13.09.2017 |
Frekari upplýsingar:
Ef óskað er eftir nánari upplýsingum vinsamlegast hafið samband við Bergþóru Þorkelsdóttur
forstjóra Ísam í síma 5222700.