Sunquick er þykkni sem blandast 1 á móti 9. úr hverri flösku er
hægt að blanda 40 glös af ávaxtadrykk sem er mjög bragðgóður og með
miklu ávaxtainnihaldi.
● Sunquick er með miklu ávaxtabragði
● Í Sunquick er hátt hlutfall af ávöxtum
● Í Sunquick eru engin gerfibragðefni, litarefni né sætuefni
● Sunquick er ríkt af C vítamíni
● Sunquick blandast mikið - 840 ml verða að 40 glösum af
ávaxtasafa
● Sunquick er í handhægum flöskum með sérhönnuðum stút
● Sunquick þarf ekki - og á ekki að geyma í ískáp
Meiri upplýsingar um sunquick er hægt að nálgast á
www.co-ro.dk
CO-RO drykkjarvörur
Co-Ro er danskt fyrirtæki í einkaeign sem var stofnað árið 1942. Þegar
það var stofnað var kaffi illfáanlegt vegna heimstyrjaldarinnar og því
einbeittu þeir sér að því að framleiða einhverskonar kaffilíkjör sem var
þrælvont en seldist vel. Á sjötta áratugnum fóru þeir að framleiða
ávaxtasafa sem átti eftir að þynna með vatni og með nýrri tækni var hægt
að varveita ávaxtabragðið vel.
Í dag einbeitir Co-Ro sér að því að framleiða ávaxtasafa í hæsta
gæðaflokki. Þeir framleiða m.a. Sun-C safana, Original safa, Sunquick
djús og Sunlolly klaka sem maður kaupir ófrysta og frystir sjálfur.
Myndir og merki
Smellið á þumalmyndirnar til að sækja/skoða þær í prentupplausn:
Myndirnar eru á JPG formi, unnar í RGB með maska í 300dpi upplausn.