Pringles á Íslandi
Pringles kom til íslands í árslok 1996 og voru viðtökurnar með eindæmum.
Fyrir utan einstakt bragð þá eru umbúðirnar ótrúlega handhægar. Ekkert
skrjáfur, engir rifnir pokar! Tekur lágmarks pláss og er auðvelt að loka
aftur og geyma. 170g staukur tekur u.þ.b. 1/3 af hilluplássi 250g
snakkpoka.
Í gegnum tíðina þá hefur Pringles original oftar en ekki verið mest
selda einstaka vörunúmerið á snakkmarkaðinum.
NÝJASTA - Pringles Mini
Nú geta Pringles aðdáendur gripið með sér uppáhalds snakkið sitt í minni
og handhægari umbúðum. Pringles Mini eru sömu góðu flögurnar, sama
ljúffenga bragðið en bara örlítið minni um sig til að passa vel í 23 gr.
umbúðirnar.
Hver pakki inniheldur aðeins 118 kcal þannig að þú getur með góðri
samvisku sett Pringles Mini í nestisboxið, gætt þér á því með kaffinu
eða haft pakka í bílnum.
Í boði eru eftirtaldar bragðtegundir: SourCream&Onion, Paprika, og Original.
Einnig eru seldir 43g staukar í sömu tegundum.
Meiri upplýsingar um Pringles er hægt að nálgast á
www.pringles.com
Markaðshlutdeild PRINGLES Samkvæmt mælingum Nielsen Scanning Data Pringles var kynnt hér á landi í lok árs 1996 og varð um leið eitt
mest selda snakk landsins. Á innan við 12 mánuðum varð Pringles Orginal
mest selda snakkið, af einstaka gerðum. Árið 2004 státaði Pringles af 11%
markaðshlutdeild og er þriðja mest selda snakktegundin á landinu.
Myndir og merki
Smellið á þumalmyndirnar til að sækja/skoða þær í prentupplausn:
Myndirnar eru á JPG formi, unnar í RGB með maska í 300dpi upplausn.
Pringles merkið er á Editable EPS formi í Zip skrá.