 |
 |
 |
Síld er holl!
Í síldinni er mikið af Omega-3 fitusýrum sem hafa jákvæð áhrif á
samsetningu blóðfitunnar og hindra æðakölkun, en þær hafa einnig jákvæð
áhrif á storknunareiginleika blóðsins og hindra myndun á blóðtappa. Í
feitum fiski, eins og lax (og síld) fást u.þ.b. 2,4 g af omega-3
fitusýrum úr 200 g skammti.
Síldin inniheldur líka mikið af próteinum eða 19,3 g í 100 g af fiski.
Próteinið í fiski er auðnýtanlegt og amínósýrurnar eru í heppilegu
hlutfalli fyrir manninn.
Í síldinni er einnig mikið af A, D og E vítamínum og steinefnum eins og
joði og kalki en sjávarfiskur er helsti joðgjafinn í fæðinu.
Manneldisráð hvetur Íslendinga til að borða meiri fisk.
Heimild: Heimasíða Rannsóknarstofnunar fiskiðnaðarins (www.rf.is)
|

ORA ÞORRASÍLD
Enn heldur Ora áfram að koma með nýjungar í síld - í upphafi árs 2005
kom Þorrasíld á markað
Þorrasíldin er sérlöguð með þennan þjóðlega sið okkar íslendinga í
huga, að halda uppá þorran með því að gæða sér á séríslenskum þorramat
en honum á að sjálfsögðu að fylgja síld.
Þorrasíldin er marineruð í bitum og bragðið er ekki eins sætt og öllu
meira kryddað en fólk á almennt að venjast.
|
 |
|
Myndir og merki |
Smellið á þumalmyndirnar til að sækja/skoða þær í prentupplausn:
|
 |
Myndirnar eru á JPG formi, unnar í RGB með maska í 300dpi upplausn.
Ora merkið er á Editable EPS formi í Zip skrá. |
 |
|
Vöruupplýsingar - Sveppir og sperglar |
|
Vörunr. |
Strikanr. |
Heiti |
stærð |
Magn |
| 9423500 |
5690519035003 |
LÚXUSSÍLD - MARÍNERUÐ Í FLÖKUM |
600 |
6 |
| 9423510 |
5690519000636 |
LÚXUSSÍLD - MARINERUÐ Í
BITUM |
590 |
6 |
| 9423520 |
5690519000629 |
LÚXUSSÍLD - MARINERUÐ Í BITUM |
375 |
6 |
| 9423540 |
5690519035409 |
LÚXUSSÍLD - MARINERUÐ
SÆLKERASÍLD |
375 |
6 |
| 9423550 |
5690519000643 |
LÚXUSSÍLD - Í TÓMATSÓSU |
330 |
6 |
| 9423560 |
5690519000582 |
LÚXUSSÍLD - Í KARRÝSÓSU |
330 |
6 |
| 9423570 |
5690519000599 |
LÚXUSSÍLD - Í SINNEPSSÓSU |
330 |
6 |
| 9423580 |
5690519035805 |
LÚXUSSÍLD - Í HVÍTLAUKSSÓSU |
330 |
6 |
| 9423590 |
5690519035904 |
LÚXUSSÍLD - Í SÆLKERASÓSU |
330 |
6 |
| 9425650 |
5690519036505 |
LÚXUSSÍLD - KRYDDSÍLD Í
BITUM |
220 |
6 |
|
 |
 |
Fyrirspurn varðandi vöru
eða þjónustu |
|
 |
Ora - Síldarsaga
Árið 1988 hófu stjórnendur Ora vinnu við að koma hugmyndum sínum um
nýjar síldarvörur á markað. Niðurstaðan úr þeirri hugmyndarvinnu var sú
að kynna síldarvörulínu sem myndi bera af í gæðum og bragði. Gríðarleg
vinna fór í að þróa marineraða síld og síldarsósur fyrir nýja síldarlínu
sem hafði þá hlotið nafnið "Ora Lúxus Síld". Árið 1989 hófst síðan
farsælt samstarf við síldarvinnsluna Óskar ehf. um val og vinnslu á
besta fáanlega hráefni fyir framleiðsluna. Ora Lúxus Síld kom svo á
markað nokkrum mánuðum síðar og má segja að neytendur hafi tekið vörunni
með opnum örmum allt frá upphafi, og gagnrýnendur gáfu síldinni frá Ora
strax hæstu einkunn í fjölmiðlum.
Til að tryggja gæði vörunnar sem best, er varan í loftdregnum umbúðum
þ.e. í glerkrukku sem er loftæmd og lokað með svokölluðu öryggisloki sem
tryggir að ekkert loft kemst að vörunni. Ora er eina fyrirtækið á
landinu sem notar þessa lokunaraðferð. Þannig haldast gæði vörunnar og
líftíminn lengist. Það er stefna fyrirtækisins að bjóða ávallt uppá
besta fáanlega hráefni enda á fyrsta flokks hráefni alltaf erindi til
neytenda.
Árið 1997 kom á markaðinn Hátíðarsíld fyrir jólin og fyrir jólin 2003
kynnti fyrirtækið sérstaka Ora árgangasíld sem ber nafn hvers árgangs
fyrir sig (þá Ora jólasíld 2003). Árið 2002 keypti Ora síðan
síldarvinnsluna Óskar ehf. og fer nú öll vinnsla á síldinni (þ.e. verkun,
marinering, lokun og pökkun) fram í húsakynnum Ora. |

ORA HAUSTSÍLD
ORA hefur sett nýja síld á markað, Haustsíld.
Haustsíldin er verkuð upp á gamla mátann ekkert skraut heldur marineruð
í bitum með nógan lauk. Hér er um að ræða kraftmikla gamaldags síld sem
hentar vel á haustmánuðum. Haustsíldin er framleidd í takmörkuðu magni
svo það er um að gera að ná sér í Haustsíldina í næstu verslun.
|
 |

ORA JÓLASÍLDIN 2007
Jólasíldin í ár er bragðbætt og skreytt með negul, einiberjum, dill,
rósapipar, sinnepsfræum og lárviðarlaufi.
Útkoman er miðlungssæt marineruð síld með hátíðlegu eftirbragði af
kryddjurtum og lárviðarlaufi. Miðin árið 2007 er silvurlitur og mun fara
afar vel á
veisluborðum landsmanna um jólin.
|
 |

ORA JÓLASÍLDIN OG HÁTÍÐARSÍLD
Sérstök jólasíld í glæsilegri glerkrukku með áföstu loki
Á hverjum jólum er hátíð í bæ í síldarframleiðslunni í verksmiðju Ora.
Þá eru framleiddar tvær tegundir af sérunninni síld fyrir hátíðarnar.
Flestir ættu að þekkja Hátíðarsíldina, en fyrir jólin 2003 var í fyrsa
sinn kynnt á markaðinn Jólasíldin 2003.
Jólasíldin er sérvalin og unnin af sérfræðingum á sínu sviði, en
Jólasíldin 2003 var valin af matgæðingum og verðlaunakokkunum í
Perlunni. |
 |
Síldin
Síldin er oft réttilega nefnd silfur hafsins og gæti það verið réttnefni
á tvo vegu, annarsvegar er verðmæti þessa fiskjar meira en flestra
annarra og á hinn bóginn er silfraður litur fisksins svo fagur að líkja
má við eðalmálm.
Síld er oftast um 30-40 cm löng og vegur þá um 500g. Hún er dekkst á
bakinu og gróft hreystrið glitrar í mörgum daufum litum frá fjólu-rauðu
yfir í grænt og allt þar á milli. Síld er uppsjávarfiskur sem syndir um
í stórum torfum. Síldin í N-Atlantshafi greinist í marga stofna sem
hrygna á misjöfnum tíma á mismunandi hafsvæðum og eru sérfræðingar búnir
að leggja mikla vinnu í að aðgreina þessa stofna svo hægt sé að skipta
eignarhaldi á kvótum og deila þeim verðmætum sem síldin skapar,
réttilega milli þeirra þjóða sem telja sig eiga hlut að máli.Síldin er
svifæta eins og flestir smærri uppsjávarfiskar. Saga síldveiða er saga
gullæðis og hruns en margar slíkar eru til frá síðsta árhundraði. Með
strangri vernd og skipulagi hefur nú tekist að láta flesta stofnana
rétta nokkuð úr kútnum, og verður vonandi ekki aftur gengið svo nærri
þessum stofnum aftur. |
 |

Ora stendur fyrir gæði
Mörgun kann að finnast það full djörf fullyrðing að Ora geti ábyrgst
gæði og ánægðan neytanda. Og að vissu leiti er það svo.
Við erum hinsvegar ekki að ábyrgjast að ekkert geti komið fyrir,
eða nokkuð geti verið að, heldur frekar það, að ef eitthvað mögulega
kemur uppá, þá viljum við kappkosta að leita allra leiða til að
koma í veg fyrir að slíkt geti hent aftur, og þannig bætt þjónust
okkar og gæðakröfur enn meira en nú er. - Þannig stendur Ora enn
fyrir gæði eins og við höfum gert í meira en hálfa öld.
● Meira um Ora gæði
|
 |
|
upp |
til baka |