Ora Grillsósur almennur texti: Þrjár tegundir af Ora Grillsósum eru
fáanlegar. Við vöruþróun var haft í huga að þær myndu henta vel með öllu
grilluðu kjöti, hvítu fuglakjöti og fiski. Má með sanni segja að sú
vinna hafi skilað vöru sem hefur algjöra sérstöðu á íslenskum markaði.
Sósurnar eru kælivara.
Grillsósa - með hvítlauk
Kaldar hvítlaukssósur með grillkjöti hafa notið mikilla vinsælda
undanfarin ár. Í hvítlaukssósuna frá Ora er einungis notað besta
fáanlega hráefni m.a. pressaður hvítlaukur en ekki hvítlaukssalt eða
hvítlauksduft. Það skýrir hve bragðgóð sósan er og laus við rammt
eftirbragð sem oft vill einkenna kaldar hvítlaukssósur þar sem notað er
hvítlauksduft eða hvítlaukssalt.
Grillsósa - með lauk og kryddjurtum
Grillsósan með lauk og kryddjurtum var sérstaklega hugsuð út frá lambi
og nautakjöti. Laukbragðið er ríkjandi en ýtir á sama tíma undir frábæra
blöndu af kryddjurtum sem notuð er í sósuna. Hentar einstaklega vel með
grilluðu lamba- og nautakjöti.
Grillsósa - með sólþurrkuðum tómötum
Ora Sólþurrkaðir tómatar hafa notið mikilla vinsælda og hreinlega slegið
í gegn enda frábær vara á ferð. Út frá velgengni þeirrar vöru kviknaði
sú hugmynd að gera kalda sósu með grillmat sem byggðist á sólþurrkuðum
tómötum. Útkoman var frábær, sambland af ítölsku kryddi, hvítlauk og
síðast en ekki síst sólþurrkuðum tómötum henta einstaklega vel með öllu
grilluðu kjöti og kjúkling. Sósan hefur tiltölulega milt bragð með
sterkum keim af sólþurrkuðum tómötum og kryddjurtum úr Miðjarðarhafinu.
Myndir og merki
Smellið á þumalmyndirnar til að sækja/skoða þær í prentupplausn:
Myndirnar eru á JPG formi, unnar í RGB í 300dpi upplausn.
Ora merkið er á Editable EPS formi í Zip skrá.
Vöruupplýsingar - BBQ sósur
Vörunr.
Strikanr.
Heiti
stærð
Magn
9428568
5690519085688
GRILLSÓSA MEÐ HVÍTLAUK
330
6
9428571
5690519085718
GRILLSÓSA MEÐ LAUK &
KRYDJURTUM
330
6
9428574
5690519084749
GRILLSÓSA MEÐ SÓLÞURRKUÐUM TÓMÖTUM
330
6
Fyrirspurn varðandi vöru
eða þjónustu
Ora stendur fyrir gæði
Mörgun kann að finnast það full djörf fullyrðing að Ora geti ábyrgst
gæði og ánægðan neytanda. Og að vissu leiti er það svo.
Við erum hinsvegar ekki að ábyrgjast að ekkert geti komið fyrir,
eða nokkuð geti verið að, heldur frekar það, að ef eitthvað mögulega
kemur uppá, þá viljum við kappkosta að leita allra leiða til að
koma í veg fyrir að slíkt geti hent aftur, og þannig bætt þjónust
okkar og gæðakröfur enn meira en nú er. - Þannig stendur Ora enn
fyrir gæði eins og við höfum gert í meira en hálfa öld. ● Meira um Ora gæði