ORA  







Merkin:
 

 

 
Heim Senda síðu Veftré Upplýsingar Prenta síðu
Ora
ástríða í matargerð


Ora - ein af staðreyndum lífsins!
Allt frá stofnun fyrirtækisins árið 1952 hafa Ora-vörurnar verið með eindæmum vinsælar og á borðum flestra Íslendinga á einn eða annan hátt.

Ora-fiskbollur og fiskbúðingur eru sígildur hversdagsmatur, og Ora Lúxus Síld einstakt ljúfmeti á brauðið. Hver getur ímyndað sér jól án hangikjöts með Ora-grænum baunum og rauðkáli eða grillmat án Ora-maískorns?

Meiri upplýsingar um Ora er hægt að nálgast á www.ora.is

Vöruupplýsingar:
Smellið á þumalmyndirnar hvers flokks til að fá nánari upplýsingar um einstaka vörur frá Ora, ásamt myndum í prentupplausn og fleira:
 

Fiskbollur og fiskbúðingur Grænar baunir og grænmeti Maiskorn og bakaðar baunir Sveppir og sperglar Rauðkál og rauðbeður Rófustappa Súpur og lifrarkæfa Tómatvörur Sardínur og túnfiskur Lúxus síld Kavíar og hrogn Gæða skinka Grillsósur

...og gæðin koma í ljós!
Ef spurt væri hvernig stæði á velgengni Ora-varanna væri svarið einfalt. Fyrsta flokks hráefni, auk fagmennsku á hæsta stigi geta ekki annað en skilað góðri vöru, enda er það eitt af kjörorðum fyrirtækisins að fyrsta flokks vara eigi alltaf erindi til neytenda.

Það má því með sanni segja að eftir meira en 50 ár séu vörur fyrirtækisins orðnar einskonar heimilisvinur í eldhúsum allra íslenskra heimila og að auki ein af staðreyndum lífsins í uppvexti flestra Íslendinga.
 
Örlítið úr sögu Ora:

Upphafið

Niðursuðuverksmiðjan Ora hf var stofnuð árið 1952 af Tryggva Jónssyni, Arnljóti Guðmundssyni og Magnúsi J. Brynjólssyni sem nú eru allir látnir. Þeir höfðu það eitt að markmiði að bjóða íslenskum markaði upp á hágæða niðursuðuvörur.

Fyrirtækið var smátt í sniðum í upphafi en óhætt er að segja að Ora hafi með árunum unnið sér traustan sess í íslenskri matarmenningu.

Fátt er mikilvægara en gott starfsfólk. Ora hefur frá upphafi státað af góðu og traustu starfsfólki sem hefur víðtæka þekkingu á starfsemi fyrirtækisins og kemur að uppbyggingu fyrirtækisins á hverjum degi.
 

SJÓNVARPSAUGLÝSING

Ora ástríða í matargerð

Það vakti mikla athygli þegar Ora sýndi fyrst nýja auglýsingu undir slagorðinu "Ástríða í matargerð". Þótti auglýsingin bæði ögrandi og skemmtileg og um varpaði um leið algerlega nýrri sýn á vörumerkið sem þótti í hugum fæstra vekja upp ástríðu.

Hægt er að skoða auglýsingarnar hérna á isam.is.
 Fyrirspurn varðandi vöru eða þjónustu

upp | til baka


 
MATVARA
● BKI
● Campbell's
● Cebe
● Delizza
● Dr.Oetker
● Frón
● Granco
● Hershey's
● Kexsmiðjan
● Merba
● Nutella
● ORA
● Original
● Oscar
● Powershot
● Pringles
● St.Dalfour
● Steeves
● Sun-Lolly
● Sun-Quick

Þekkt fyrir gæði
Íslensk Ameríska á nokkur af þekktustu íslensku vörumerkjum landsins. Þar á meðal Ora, Frón og Mylluna.
● Matvara
● Vörumerki
Ora stendur fyrir gæði
Mörgun kann að finnast það full djörf fullyrðing að Ora geti ábyrgst gæði og ánægðan neytanda. Og að vissu leiti er það svo.

Hér er hinsvegar ekki verið að ábyrgjast að ekkert geti komið fyrir, eða nokkuð geti verið að, heldur frekar það, að ef eitthvað mögulega gæti komið uppá, þá viljum við kappkosta að leita allra leiða til að koma í veg fyrir að slíkt geti hent aftur, og þannig bætt þjónust okkar og gæðakröfur enn meira en nú er. - Þannig stendur Ora enn fyrir gæði eins og við höfum gert í meira en hálfa öld.
● Meira um Ora gæði


  Fyrirtækin: