 |
|
eins og hjá ömmu |
Kexsmiðjan var stofnuð um mitt ár 1996 á Akureyri. Í fyrstu var
einungis framleitt kex og smákökur en fjótlega bættust við ýmsar
tegundir af kaffibrauði s.s snúðar, muffins, vínarbrauð og fleira í þeim
dúr.
Allar götur frá stofnun hefur Kexsmiðjan þróað og sett á markað vörur
sem neytendur hafa tekið mjög vel. Fyrirtækið hefur þannig verið
leiðandi í því að mæta þörfum neytenda varðandi hentugar smásölueiningar
og það hefur skapað stöðugan og góðan vöxt Kexsmiðjunnar allt frá
byrjun.
Meiri upplýsingar um Kexsmiðjuna er hægt að nálgast á
upplýsingasíðu fyrirtækjanna
hérna. Og á heimasíðu Kexsmiðjunnar á
www.kexsmidjan.is.
|