|
Frón |
 |
 |
|
Kemur við sögu á hverjum degi |
Kexverksmiðjan Frón var stofnuð 12. júní árið 1926. Starfsemi
fyrirtækins hefur aukist frá upphafi, en nú starfa um 40 manns hjá
fyrirtækinu. Frón hefur nú framleitt yfir 700 tonn af ljúffengu kexi á
ári mörg undanfarin ár og framleiðslan vex ár frá ári.
Mjólkurkexið hefur verið á markaðnum í rúm fimmtíu ár. Að ógleymdu
Matarkexinu sem hefur verið með frá upphafi og er elsta kex landsins.
Meiri upplýsingar um Frón er hægt að nálgast á
www.fronkex.is
|
 |
 |
 |
|
Vöruskrá: |
 Hér
getur þú séð vöruskrá Frón á PDF formi, þar sem þú finnur
myndir af öllu vöruvali undir vörumerkjum Frón, ásamt helstu upplýsingum: Vöru- og
strikanúmer auk þyngdar og magni í kassa.
• skoða PDF skjal [4,07 MB] |
 |
 |
 |
HAFÐU ÞAÐ KÓSÍ!
-Töföld ánægja frá Frón.
Kósí er einstaklega bragðgott kókos súkkulaðikex sem er óíkt öllu öðru
sem nú er fáanlegt á markaðnum.
Það sem gerir Kósí frábrugðið venjulegi súkkulaðikexi er að um er að
ræða súkkulaðihúðaða kókossmákökur með súkkulaðibitum sem síðan er
toppað með kókos!
• vöruupplýsingar |
 |
|
|
 |
Frón - það er bara allur pakkinn!
Frón er leiðandi vörumerki á íslenskum kexmarkaði og hefur ekkert
annað merki jafn sterka markaðshlutdeild, eða um þriðjung markaðarins.
Mjólkurkexið er einnig það kex sem landsmönnum líkar best, en á ári
borða Íslendingar um 260 tonn af þessu ljúffenga kexi, eða tæp 22 þúsund
kíló á mánuði. Það kemur eflaust mörgum á óvart að enn er aukning á sölu
þessarar vöru sem framleidd hefur verið óbreytt í meira en 50 ár!
|
 |
 |
Merki Frón
Merkið er á Editable EPS formi í Zip skrá.
● sækja
merki |
|
 |
Örlítið úr sögunni:
Íslensk Ameríska keypti Kexverksmiðjuna Frón í árslok 1999 og hefur
samvinnan á milli þessara fyrirtækja gengið mjög vel. Strax var sett á
stefnuskránna að bjóða uppá spennandi og ljúffengar nýjungar frá Frón á
hverju ári, og hefur það gengið eftir fram að þessu og hingað til.
Frón hefur einnig flutt inn vörur erlendis frá síðustu ár. Sem dæmi má
nefna St. Dalfour sulturnar, Sun Rice ríssúkkulaðið og Merba
Súkkulaðibitakexið. Allt vörur sem eru þekktar fyrir gæði.
|
 |

Ný auglýsing um Frónkexið - sem kemur
við sögu á hverjum degi.
Frón fór í stórt verkefni á vordögum og réðst í framleiðslu
á nýrri og glæsilegri auglýsingu til að segja neytendum frá
kexinu, sem kemur við sögu á hverjum degi.
Auglýsingin hefur fallið vel í kramið hjá þeim sem horft
hafa á og margir hafa það á orði að lagið sem leikið er
undir festist fljótt í minni.
● sjá auglýsingu |
 |
 |
Fyrirspurn varðandi vöru
eða þjónustu |
|
 |
|
upp |
til baka |