Upplýsingar um Kexsmiðju vörurnar, myndir og fleira finnur þú
hérna á isam.is
Kexsmiðjan var stofnuð um mitt ár 1996 á Akureyri.
Í fyrstu var einungis
framleitt kex og smákökur en fjótlega bættust við ýmsar tegundir af
kaffibrauði svo sem snúðar, muffins, vínarbrauð og margt fleira.
Allar götur frá stofnun hefur Kexsmiðjan þróað og sett á markað vörur
sem neytendur hafa tekið mjög vel. Fyrirtækið hefur þannig verið
leiðandi í því að mæta þörfum neytenda varðandi hentugar smásölueiningar
og það hefur skapað stöðugan og góðan vöxt Kexsmiðjunnar allt frá
byrjun.
Í dag starfa um 20 manns hjá Kexsmiðjunni og heildarframleiðsla
félagsins er um 300 tonn af kexi og brauðvörum.
Íslensk-Ameríska keypti starfsemi Kexsmiðjunnar í desember 2003 í þeim
tilgangi að styrkja enn frekar framboð sitt af vönduðum matvælum fyrir
íslenska neytendur.
Merki sem allir þekkja Íslensk Ameríska hefur ávallt lagt mikla áherslu á að
markaðssetja vörumerki, sem vel flest eru meðal þeirra best þekktu á
landinu, og oft í heiminum öllum.