Íslensk Ameríska er ávallt að leita eftir úrvals
starfsfólki, og hefur uppá margskonar störf að bjóða, enda
stórt fyrirtæki.
Mikil áhersla er lögð á góðan starfsanda og gott
starfsumhverfi, enda vinnan krefjandi og mikil hvatning um
að ná árangri, hvort er heldur persónulega eða
fyrirtækisins.
Íslensk Ameríska verslunarfélagið
Tunguháls 11 | 110 Reykjavík | sími: 522 2700 ● meira
25.04.2012
Hjartnæmt myndband heiðrar mæður: „Takk mamma!“
Eftirvæntingin er mikil hjá fjölskyldum þeirra íþróttamanna sem hafa nú
þegar tryggt sér þátttöku á Ólympíuleikunum í London í sumar. Flestir
íþróttamennirnir hafa æft sleitulaust í árafjölda og jafnvel frá blautu
barnsbeini. Þá er gott að eiga góða að og hefur aðalstyrktaraðili
Ólympíuleikanna, Procter og Gamble, því sett saman auglýsingaherferð sem
heiðrar mömmurnar sem hafa hvatt börnin sín áfram á íþróttaferlinum.