Nú
er komin sannkölluð jólastemning í verslun Nettó í Mjóddinni og
starfsfólk verslunarinnar svo sannarlega komið í jólaskap. Búið er að
raða jólavörum í hillurnar, jólalögin hljóma í hátölurum verslunarinnar
og skapa notalegt og þægilegt andrúmsloft við innkaupin sem ætti að koma
öllum í jólaskap. Vörurnar frá Ora hafa verið stór hluti af jólunum hjá
landsmönnum um áratugaskeið og núna stendur Ora fyrir skemmtilegri
jólagetraun í verslun Nettó í Mjódd. En þar er búið að hlaða risastórt
jólatré úr Ora niðursuðudósum sem flestar innihalda grænar baunir.
Þó reynast nokkrar rauðkálsdósir í jólatrénu og þeir sem geta sagt til
um hvað þær eru margar fá skemmtilegan jólaglaðning frá Ora. Gerðu þér
ferð í Nettó í Mjódd, taktu þátt í getrauninni og kannski hreppir þú
skemmtilegan jólaglaðning.