ÍsAm hefur nú formlega tekið við Oral-B umboðinu á Íslandi sem opinber
dreifingaraðili fyrir Procter & Gamble en þeir keyptu vörumerkið árið
2006. Oral-B ættu allir að þekkja enda heimsleiðtogi í flokki tannbursta
og það vörumerki sem tannlæknar um allan heim nota í auknu mæli sjálfir
og mæla með!
Fyrsti Oral-B tannburstinn var framleiddur af tannholdsfræðingi árið
1950 í USA. Síðan þá hefur vörulínan þróast hratt og stækkað þannig að
Oral-B býður í dag venjulega tannbursta, rafknúna tannbursta í samstarfi
við Braun auk ýmissa hliðarvara s.s. tannþræði, munnskol ofl. Til
fróðleiks veltir tannburstamarkaðurinn 2,9 milljörðum punda árlega eða
c.a. 600 milljarðar íslenskra króna á núverandi gengi!
Oral-B hefur verið í umsjá Kj.Kjartanssonar ehf. síðan 1993 og á
vörumerkið sér farsæla sögu hér á landi. Kj.Kjartansson hafa sérhæft sig
í sölu á vörum fyrir tannlæknastéttina og munu áfram þjónusta þá
fagaðila og apótek í samstarfi við ÍsAm. ÍsAm mun að sjálfsögðu
kappkosta að þjónusta og byggja upp Oral-B vörumerkið hér á landi enn
frekar. Markmiðið er að sem flestir Íslendingar njóti gæða Oral-B til
bættrar tannheilsu landsmanna.
Smellið á smámyndirnar hér fyrir ofan til að
skoða PDF skjöl með vöruúrvali og upplýsingum um Oral-B vörulínuna.