Íslensk Ameríska ásamt Kahlúa og Puratos efna til kökugerðarkeppni
sem haldin verður í Gyllta Sal Hótel Borgar laugardaginn 26. september
2009.
Keppendur
útbúa tvær kökur sem verða að innihalda Kahlúa líkjör og Puratos
bökunarvörur.
Kahlúa á Íslandi mun útvega keppendum ösku af Kahlúa til að þróa kökuna
og Puratos mun bjóða keppendum valdar vörur á sérkjörum.
Framkvæmd keppni.
Kökur skulu afhentar í Gyllta Salnum á Hótel Borg á milli kl 10:00 og
12:00 laugardaginn 26. september en þar mun dómnefnd dæma framlag hvers
keppanda m.t.t. bragðs, útlits og samsetningar. Dómnefndin er skipuð 5
sérvöldum sælkerum og er Hafliði Ragnarsson “chocolatier” yfirdómari.
Gyllti Salurinn verður svo opnaður kl. 15:00 þar sem að almenningi gefst
kostur á að smakka kökurnar. Einnig verður Kahlúa kynnt í ýmsum
útfærslum. Úrslitin verða svo tilkynnt kl. 17:00 með viðhöfn.
Kakan sem ber sigur úr býtum mun hljóta titilinn “Kahlúa kaka ársins
2009”. Sigurkökunni ásamt höfundi hennar verða svo gerð góð skil í
Gestgjafanum ásamt fleiri miðlum.
Glæsileg verðlaun verða veitt fyrir 3 efstu sætin;
Utanlandsferð að eigin vali ásamt gjafakörfu frá Íslensk
Ameríska og Kahlúa.
Gjafabréf á veitingastaðinn Silfur ásamt gjafakörfu frá
Íslensk Ameríska og Kahlúa.
Gjafakarfa frá Íslensk Ameríska og Kahlúa.
Allir keppendur fá viðurkenningarskjal að keppni lokinni. Skráningu
skal skila á netfangið
johannes@isam.is í síðasta lagi 15. september 2009. Nánari
upplýsingar veitir Jóhannes Baldursson í síma 856 2762 eða
johannes@isam.is