Íslensk Ameríska hefur hlotið nafnbótina Fyrirmyndarfyrirtæki árið
2008 eftir árlega könnun VR og er nokkurskonar
ánægjuvog starfsfólks í garð þess fyrirtækisins sem það starfar hjá.
Árangur Íslensk Ameríska er eftirtektarverður, m.a. í ljósi þess hve
starfsemi fyrirtækisins er fjölþætt. Um leið undirstrikar þessi árangur
þá staðreynd að það er valinn maður í hverju rúmi sem skapar þessa
frábæru liðsheild.
Árangurinn er mikil hvatning fyrir ÍsAm að halda áfram á sömu braut við
uppbyggingu starfsaðstöðu, umhverfi og aðbúnað til að fólk njóti sín í
þeim störfum sem það sinnir og að það hafi áhrif á bjarta framtíð
fyrirtækisins.
Fyrirtækin í efstu sætunum í könnun VR á Fyrirtæki ársins fá
sérstaka viðurkenningu, nafnbótina Fyrirmyndarfyrirtæki, fyrir
frábæran árangur. Hátt í fjögur hundruð fyrirtæki eru á listanum yfir
Fyrirtæki ársins í tveimur stærðarflokkum og fá þau fyrirtæki sem eru í tuttugu efstu sætunum í
hvorum flokki fyrir sig þennan titil.
Nú hefur Always komið fram með enn eina byltinguna í dömubindum. Í
fyrsta sinn hefur dömubindi og blautþurrku verið pakkað saman í
handhægar umbúðir til að grípa með sér hvert sem er.